Almenna verkfræðistofan hefur náð þeim eftirsótta áfanga að fá vottun á gæðakerfi félagsins. Vottun hf. hefur staðfest að gæðakerfi AV uppfyllir kröfur staðalsins ÍST EN ISO 9001: 2000 “Gæðastjórnunarkerfi – kröfur” og er AV þar með fyrsta verkfræðistofan til að fá vottun úr hendi þessa innlenda vottunaraðila.
Í all mörg ár þá hefur Almenna verkfræðistofan verið með skjalfest gæðakerfi í rekstri sínum en er nú komin í hóp fárra aðila sem geta státað að vottuðu gæðakerfi samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.
Almenna verkfræðistofan hefur jafnframt tekið upp Umhverfisstjórnunarkerfi og hefur Vottun hf. staðfest að stofan uppfylli kröfur staðalsins ÍST EN ISO 14001: 2004.
Sækja bækling