Almenna verkfræðistofan hefur hlotið vottun á umhverfisstjórnunarkerfi sitt samkvæmt alþjóðlega umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001:2004. Vottunin sem Vottun hf. staðfesti nær til allrar starfsemi fyrirtækisins.
Umhverfisstjórnunarkerfið er fellt inn í gæðastjórnunarkerfi fyrirtækisins sem var vottað snemma árs 2005 samkvæmt ISO 9001:2000 staðli. Í báðum tilvikum var Almenna verkfræðistofan fyrsta verkfræðistofan sem vottuð var af eina íslenska vottunarfyrirtækinu, Vottun hf.
Þróun umhverfisstjórnunarkerfisins byggist á því að mörkuð er stefna og sett markmið í umhverfismálum sem miða að því að uppfylla sífellt auknar kröfur samfélagsins. Þessum markmiðum mun Almenna verkfræðistofan ná með stýringu á eigin starfsemi og með ráðgjöf til viðskiptavina.